PROCEON hlýtur styrk úr Tækniþróunarsjóði

June 12, 2026

General
Sale
Installation
Partnership

Reykjavík, júní 2026

PROCEON hefur hlotið styrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís (Fræ) fyrir verkefnið SPAREON – Skilvirkari viðskipti og hringrás varahluta í Bláa hagkerfinu. Í fyrstu úthlutun ársins 2026 voru 24 af 91 umsókn valin til styrkveitingar. Við erum ákaflega stoltir að hafa hlotið þennan styrk.  

Vandinn er vel þekktur í greininni. Með flóknari og viðhaldsfrekari búnaði þá flækist aðfangakeðjan til að útvega varahluti. Þegar lykilbúnaður stöðvast getur rétti varahluturinn verið á margra vikna afhendingartíma erlendis — eða ónotaður í hillu hjá vinnslu í næsta í næsta húsi. Aðfangakeðjan er brothætt, gagnsæi lítið og milljarðar króna bundnir í öryggisbirgðum og úreltum lager sem nýtist illa.

Markmið SPAREON er að rannsaka þennan vanda til hlítar og kanna hvernig gera megi viðskipti og endurnýtingu varahluta í Bláa hagkerfinu gagnsærri og skilvirkari — með minni sóun, minna bundnu fjármagni og þolnari rekstri að leiðarljósi. Verkefnið er á frumstigi og styrkurinn gerir okkur kleift að leggja grunninn.

Næstu mánuði viljum við heyra í vinnsluaðilum, kaupendum, framleiðendum og birgjum til að skilja hvernig varahlutir eru í raun útvegaðir og seldir í dag — og hvar skórinn kreppir mest og hvernig hægt er að minnka sóun, auka skilvirkni og stuðla að meiri sjálfbærni og endurnýtingu.

Hafðu samband: trausti@proceon.is · +354 825 8247 · proceon.is

PROCEON awarded grant from the Technology Development Fund

Reykjavík, June 2026

PROCEON has been awarded a grant from the Technology Development Fund of Rannís (the Seed / Fræ programme) for the project SPAREON – More efficient trade and circularity of spare parts in the Blue Economy. In the first allocation round of 2026, 24 of 91 applications were selected for funding. We are extremely proud to have received this grant.

The problem is well known in the industry. As equipment becomes more complex and maintenance-intensive, the supply chain for sourcing spare parts comes more complex. When critical equipment goes down, the right part may be weeks away on an overseas lead time — or sitting unused on a shelf at a plant next door. The supply chain is fragile, transparency is low, and billions of krónur are tied up in safety stock and obsolete inventory that goes underused.

The goal of SPAREON is to investigate this problem thoroughly and explore how the trade and reuse of spare parts in the Blue Economy can be made more transparent and efficient — guided by less waste, less trapped capital, and more resilient operations. The project is at an early stage, and the grant allows us to lay the groundwork.

Over the coming months we want to hear from processors, buyers, manufacturers, and suppliers to understand how spare parts are actually sourced and sold today — where it hurts most, and how we can reduce waste, increase efficiency, and support greater sustainability and reuse.

Get in touch: trausti@proceon.is · +354 825 8247 · proceon.is

Looking for Collaboration? Drop a  Message

Drop us a message! We’d love to hear your vision — and help make it real.

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.