PROCEON lýkur fyrstu fjármögnunarlotu

October 19, 2026

General
Sale
Installation
Partnership

PROCEON ehf., íslenskt tæknifyrirtæki sem þróargervigreindarlausnir fyrir fiskvinnslu, laxeldi og matvælaiðnað, hefur lokið fyrstu fjármögnunarlotu sinni. Nýsköpunarsjóðurinn Kría fjárfestir í félaginu fyrir 30 milljónir króna og hópur einkafjárfesta ásamt stofnendum leggur til jafn hátt mótframlag. Samanlagt nemur lotan því 60 milljónum króna.

PROCEON var stofnað í október 2025 af Trausta Árnasyni, Elíasi Jónssyni og Ragnari Guðmundssyni með það markmið að hjálpa fyrirtækjum í sjávarútvegi, laxeldi og matvælaframleiðslu að auka verðmætasköpun, nýtingu hráefnis og skilvirkni með gervigreindardrifnum lausnum. Stofnendur félagsins búa samanlagt yfir áratuga reynslu af þróun og innleiðingu hátæknilausna fyrir matvælaiðnað. Lausnir PROCEON eru hannaðar til að vinna með þeim búnaði og kerfum sem þegar eru í notkun, óháð framleiðanda, og gera fyrirtækjum kleift að nýta gögn og sjálfvirkni til að bæta ákvarðanatöku og sjálfbærni.

Sjálfvirknivæðir eitt mannaflsfrekasta skrefið ífiskvinnslu

Fjármagnið verður nýtt til að ljúka þróun og fyrstu innleiðingum PROJET sem er gervigreindardrifin vatnsskurðarlausn fyrir lax og hvítfisk sem sameinar myndgreiningu, gervigreind og nákvæma skurðtækni til að sjálfvirknivæða mat og snyrtingu hvers flaks í rauntíma.

Í dag er snyrting að stórum hluta handvirkt ferli þar sem hvert flak þarf að fara fyrir augu starfsmanns sem metur hvað þurfi að skera frá og framkvæmir skurðinn. PROJET sjálfvirknivæðir þetta ferli með því aðgreina hvert flak með myndgreiningu og aðlaga skurðinn að raunverulegum eiginleikum og gæðum þess. Markmiðið er að fækka handtökum í þessu ferli, takaút huglægt mat, tryggja samræmd gæði og hámarksnýtingu með því að fjarlægja nákvæmlega það sem þarf til að uppfylla gæðakröfur, en varðveita um leið sem mest af verðmætri afurð.

‍

Trausti Árnason, framkvæmdastjóri PROCEON:

"Við erum afar ánægðir með að fá Kríu og aðra fjárfesta í hópinn og stuðningur þeirra skiptir okkur mjög miklu máli á þessum tímapunkti. Þegar við stofnendur vorum á tímamótum sl. haust sáum við fjölmörg tækifæri á markaðnum og ákváðum að taka slaginn og stofnuðum félagið. Kría hefur verið okkur mikil hvatning og stuðningur í þessu ferli. Undanfarið höfum við átt í nánu samtali við fyrirtæki í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu um þær áskoranir sem greinin stendur frammi fyrir, bæði hér heima og erlendis. Úr því samtali hafa sprottið fjölmargar hugmyndir að lausnum sem taka á raunverulegum og óleystum vandamálum í greininni, og ein þeirra hlaut styrk frá Rannís fyrr á árinu.
Á vormánuðum tók hugmyndin að PROJET á sig skýra mynd, og í dag er frumgerð lausnarinnar í smíðum eftir velheppnað hönnunarferli. Viðbrögð markaðarins hafa verið mjög jákvæð og við teljum að PROJET hafi burði til að umbreyta ákveðnum vinnsluskrefum."

‍

‍Fyrsta verkefnið afhent fyrir hrognavertíð

Samhliða vöruþróun hefur PROCEON þegar afhent sitt fyrsta verkefni. Fyrr á þessu ári gerði félagið samning við leiðandi breskt uppsjávarfélag um heildarlausn fyrir hrognavinnslu, þar sem PROCEON sá um hönnun, útboð og innleiðingu vinnslulínunnar. Fyrsti áfangi verkefnisins var afhentur í lok júlí, fyrir síldarhrognavertíð, og skilaði miklum ávinningi og verðmætaaukningu afurða miðað við síðustu ár. Á öðrum ársfjórðungi 2027 er stefnt  að því að PROJET lausnin frá PROCEON verðiafhent til viðskiptavinar . Næstu mánuðir verða notaðir í umfangsmiklarprófanir á Íslandi.

‍

Um aðkomu Kríu

Nýsköpunarsjóðurinn Kría fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjumá fyrstu stigum og leggur áherslu á að  styrkja stjórnarhætti þeirra og virkja einkafjárfesta til þátttöku. Sjóðurinn fjárfestir oft í upphafi 20 til 40milljónum króna í nýsköpunarfyrirtækjum gegn því að einkafjárfestar leggi tilað lágmarki jafnháa fjárhæð.

‍

Hrönn Greipsdóttir, forstjóri NýsköpunarsjóðsinsKríu:

"Styrkur teymis er einn mikilvægasti þátturinnsem horft er til þegar fjárfest er í nýsköpunarfyrirtækjum.  Proceon teymið býr yfir eftirtektarverðu hugviti,reynslu, krafti og stóru tengslaneti.  Tilmarks um það þá hefur félagið þegar afhent sitt fyrsta verkefni til erlendsviðskiptavinar og fengið einkafjárfesta með sér á þessu stigi. Það er sjóðnumeinnig  mikilvægt að styðja við nýsköpuní grunnatvinnuvegum þjóðarinnar og við hlökkum til að fylgja félaginu eftir í þessarispennandi vegferð."

‍

Um PROCEON

PROCEON ehf. er íslenskt tæknifyrirtæki, stofnað árið 2025, sem þróar gervigreindarlausnir fyrir sjávarútveg, laxeldi og matvælaframleiðslu. Í þessum greinum tapast dagleg verðmæti í handvirkumferlum, huglægu mati og gögnum sem ekki eru nýtt til ákvarðana.

Lausnir PROCEON bæta nýtingu, gæði og skilvirkni íframleiðslu með ólíkum hætti: PROJET, gervigreindarstýrð vatnsskurðarlausn fyrir sjálfvirka gæðasnyrtingu, VISQA, sjálfvirkt gæðamat með myndgreiningu, og PREDIXA, greiningar- og gervigreindarlíkan sem nýtir rauntímagögn um búnað, framleiðslu og hráefnisnýtingu til að greina frávik snemma og styðja gagnadrifna ákvarðanatöku.

‍

Nánari upplýsingar

Trausti Árnason, framkvæmdastjóri PROCEON

trausti@proceon.is · +354 825 8247

‍

Looking for Collaboration? Drop a  Message

Drop us a message! We’d love to hear your vision — and help make it real.

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.